Málskostnaðartrygging
Flestir hafa heimilistryggingu og algengt er að í slíkum tryggingum sé innifalin réttaraðstoðartrygging. Slíkum tryggingum er ætlað að standa straum af málskostnaði í heild eða að hluta, sé leitað aðstoðar lögmanns. Mikilvægt er að kynna sér tryggingar sínar vel en í skilmálum trygginga er tekið fram hvers konar mál geta mögulega átt undir réttaraðstoðartryggingu og hver ekki.

